Fyrirtækið

Fyrirtækið

Jeppaleigan Isak ehf. var stofnuð á sumarsólhvörfum 2007. Meginmarkmið með stofnun fyrirtækisins var að brydda á þeirri nýjung í ferðaþjónustu á Íslandi að hópar og einstaklingar geti leigt fullbreytta jeppa til krefjandi ferða. Eigandi Ísaks ehf. er Ísafold ehf.. Fyrirtækið er rekið í náinni samvinnu við ferðaskrifstofuna Isafold Travel sem sér um útfærslu ferða ef óskað er og ef um er að ræða heildarpakka með gistingu eða annarri þjónustu.  

Með framlagi sem nemur til jafnaðar kr. 500,- á hvern bíl í dagsleigu gerir Isak ehf. sitt til að bæta fyrir þá auknu koltvísýringsframleiðslu sem fylgir notkun bíla í eigu fyrirtækisins. Það er bæði gert með því að styðja við rannsóknir og þróun innlendra orkugjafa framtíðarinnar hjá Íslenskri nýorku, og með framlögum til Kolviðar til gróðursetningar u.þ.b. 130 trjáplantna árlega til að binda kolefnið sem vélar bílanna losar.



Language


Þetta vefsvæði byggir á Eplica