Flotinn
Land Rover hefur verið framleiddur í yfir 60 ár og hönnun hans byggir á mikilli reynslu og beitingu bílanna við erfiðustu aðstæður. Bílalegian Ísak ehf á 16 breytta Landrover Defender.
Með íslensku hugviti og handverki hefur bílunum verið breytt til krefjandi ferðalaga jafnt að sumri sem vetri. Þeir hafa verið hækkaðir og sett undir þá 38” hjól til að auka flot bílanna í snjó og mjúku undirlagi með tilheyrandi aukningu á veghæð. Drifhlutföll eru lækkuð til að vega á móti aukinni hjólstærð og minnka þannig álag á vél og drifrás. Að auki eru bílarnir búnir til fjallaferða eins og best verður á kosið með vélknúinni loftdælu, öflugri framstuðara með ljóskösturum, dráttarbúnaði og tjakksætum, loftinntaksrana, GPS leiðsögu- og kortatæki og langdrægri VHF talstöð með lokaðri rás til samskipta innan hópsins sem er á ferðinni. Ennfremur fylgir allur helsti auka- og hjálparbúnaður hverjum bíl, s.s. skófla, dráttartó, tappasett og verkfæri. Til viðbótar þessu er til lengri ferðalaga hægt að leigja bíla með sæti fyrir eldsneytisbrúsa, bíl með farangursgrind og topptjaldi eða “tengdamömmuboxum”.
Fyrirtækið SS Gíslason –með meir en áratugarreynslu af Landróver- hefur séð um breytingar bílanna, en Tæknivélar sá um frágang á aukarafbúnaði.
Allir bílarnir hafa einkanúmer, ISAK 1 til ISAK 17 til að auðkenna bílana og auðvelda samskipti milli þeirra þegar margir bílar eru saman í lestarferð (e. Convoy Tour).
